Sælir kæru foreldrar.
Næsta laugardag, 24. nóvember, verður seinni sameiginlega
fótboltaæfing 5. - 10. bekkjar Skaftárhrepps og Mýrdalshrepps. Æfingin hefst
kl. 10 og er 1,5 klst. og er haldin í íþróttahúsinu Vík.
Þjálfari er Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson.
Það er nauðsynlegt að skrá krakkana á æfinguna því
Mýrdælingar ætla að bjóða þeim í pizzupartí eftir æfingu.
Vinsamlegast sendið skráningar á netfangið [email protected] í síðasta lagi
fimmtudaginn 22. nóv.
Með von um góða þátttöku.
Bestu kveðjur, Fanney Ólöf