Sælir félagar.
Innanhúsmót USVS í frjálsum íþróttum verður haldið í Íþróttamiðstöðinni á Klaustri sunnudaginn 26. febrúar n.k. og hefst mótið kl. 10:00.
Skráningar berist á netfangið
[email protected], í síðasta lagi sólarhring fyrir mót. Skráning skal innihalda nafn og kt. keppenda og þær greinar sem viðkomandi hyggst taka þátt í.
Nánari upplýsingar um mótið og keppnisgreinar má nálgast á heimasíðu USVS, www.usvs.is, undir lög og reglugerðir USVS.
Við hvetjum alla, unga sem aldna, til að taka þátt og hafa gaman saman.
Innanhúsmót í knattspyrnu verður haldið laugardaginn 4. mars n.k. í Íþróttamiðstöðinni á Klaustri og hefst mótið kl. 10:00.
Ungmennafélögin í Vík og Skaftárhreppi sjá um liðsskipan, leikið verður eftir reglugerð um knattleiki sem finna má á heimasíðu USVS, www.usvs.is.
Stjórnin